Ekki boðleg lausn

Enn og aftur erum við minnt á mikilvægi þess að eiga greiðar og góðar samgöngleiðir með þeim vanda sem nú er komin upp varðandi notkun Breiðafjarðarferjunnar á sjóleiðinni til Eyja. Öll byggðarlög sama hvar á landinu þau eru eiga tilveru sína, samkeppnishæfni og vaxtarmöguleika undir þeim samgönguleiðum sem færar eru . Eyjamenn, ólíkt flestum öðrum landsmönnum, eru einfaldlega minntir hressilega á þessa staðreynd reglulega. Tel að allir landsmenn skilji sjónarmið Eyjamanna og komi til með að þjappa sér að baki því að klára framkvæmdir og útfærslu á framtíðar ferjumálum á sjóeiðinni til Vestmannaeyja gegnum hina nýju Landeyjahöfn.

Markmiðið hlýtur að vera að tryggja að tilvik sem þessi komi ekki upp. Er ekki einfaldlega niðurstaðan að sú ákvörðun að nota Baldur í afleysingasiglingar milli lands og Eyja var röng?


mbl.is Vestmannaeyjar án sjósamgangna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband