Hárrétt hjá Hannesi

Íslenska þjóðin er rík þar sem landið okkar er auðugt af orku. Mikilvægt er hér eftir sem hingað til að við nýtum okkur þá möguleika sem náttúran býður upp á til að efla búsetu og lífsgæði landsmönnum öllum til heilla. Tækifærin eru til staðar, stjórnmálamenn verða að hafa kjark til að grípa þau. Ráðamenn verða að hafa framtíðarsýn varðandi uppbyggingu atvinnutækifæra. Við leysum ekki vandamál skuldsettra heimila, sköpum ekki fleiri störf né byggjum upp öflugt efnahagslíf að nýju með því einu að hækka skatta.

Við skulum lifa af því sem landið gefur og grípa tækifærin.


mbl.is Hefja á sókn í orkumálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband