4.11.2009 | 23:46
4 fyrirspurnir lagðar fram í dag
Í fyrsta lagi beini ég fyrirspurn til samgönguráðherra um hvort unnið sé að því að Hornafjarðarflugvöllur fái aftur löggildingu sem millilandaflugvöllur með áherslu á ferjuflug og einkaflug og ef svo er, hver staða þeirrar vinnu er?
Í öðru lagi beini ég þeirri fyrirspurn til samgönguráðherra hvort fyrirhugaðar séu breytingar á aðkomu ríkisins að flugsamgöngum til Vestmannaeyja vegna tilkomu Landeyjahafnar. Ljóst er að svar við þessari spurningu varðar Eyjamenn og gesti þeirra miklu og þarf að fara að komast á hreint hvernig málum verður háttað.
Í þriðja lagi beini ég tveim fyrirspurnum til menntamálaráðherra um hver sé staða undirbúningsvinnu að stofnun tveggja framhaldsskóla, annars vegar í Rangárþingi og hins vegar í Grindavík.
Fróðlegt verður að fá svör við þessum fyrirspurnum en um þessi mál og fleiri var fjallað á ársþingi Sambands sunnlenskra sveitarfélaga á Hornafirði um miðjan síðasta mánuð og um framhaldsskólann í Grindavík á fundi SSS, Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum þann 17. október sl.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.